Fréttir

LANDSMÓTSTILBOÐ

Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið í Borgarnesi um helgina og eigum við von á miklum fjölda gesta því metskráning er á mótið. Af þessu tilefni bjóðum við fjölskylduvænt hlaðborð og góða rétti á matseðli.  Sjá hlaðborð og helgarmatseðil.

Lesa meira...

NÝUNGAR

Í sumar er bæðið veitingahúsið, verslunin og sýningarnar opið alla daga til kl. 21. Eftir kl. sex lokum við aðalinnganginum og bendum gestum á að ganga í gegnum veitingahúsið. Í veitingahúsinum bjóðum við nú uppá á matarmikið og gott hlaðborð með grænmetis- og kjötgúllasi, kartöflum, rísotto, pasta, salati og súpu. Tilvalið fyrir svanga ferðalanga sem ekki hafa tíma til að panta sér af matseðli.

Lesa meira...

Við bjóðum börnin sérstaklega velkomin

Landnámssetur tekur þátt í skemmtilegu samstarfsverkefni 10 ferðaþjóna á Vesturlandi sem gengur undir nafninu Saga og Jökull - ævintýri á Vesturlandi. Öll börn sem skoða annað hvort Landnámssýninguna eða Egilssýninguna fá að gjöf fallega möppu sem inniheldur fyrsta sögukaflann í ævintýrinu um Sögu og Jökul. Að auki fá börnin kaflann um ævintýrið sem Saga og Jökull lentu í Landnámssetri. Svo er hægt að safna sér fleiri köflum í söguna með því að heimsæka hina staðina 9 td Brúðuheima sem eru í göngufæri frá Landnámssetri.

Lesa meira...